Um Mig
Ég heiti Eydís Sara og ég hef verið að breyta lífstílnum mínum til hins betra síðustu 2 árin. Ég hef ekki náð árangri áfallalaust og ætla ég nú að setja mér ný markmið og leyfa ykkur að fylgjast með mér í því ferli.
Ég hef alltaf verið of þung og hef alveg náð að taka mig á en stundum koma upp hlutir í lífinu sem maður ræður ekkert við. Þá þarf maður að ná stjórn á þeim og taka sig til í andlitinu og halda áfram. Ég ætla einmitt að gera það núna.
Mín markmið:
Langtíma (árið 2016)
Ég hef alltaf verið of þung og hef alveg náð að taka mig á en stundum koma upp hlutir í lífinu sem maður ræður ekkert við. Þá þarf maður að ná stjórn á þeim og taka sig til í andlitinu og halda áfram. Ég ætla einmitt að gera það núna.
Mín markmið:
Langtíma (árið 2016)
- Mín langtíma markmið eru að missa 20-25 kg á næstu 1-2 árum og verða sáttari með líkamann minn.
- Ég ætla mér að geta hlaupið 21 km í Reykjavíkurmaraþoninu 2016 en ef ég þori ekki að hlaupa með svona miklum fjölda fólks þá ætla ég samt að hlaupa vegalengdina á settum degi.
- Ég ætla að byrja að líða vel í eigin líkama, líða vel í flottum fötum og geta klæðst því sem ég vil.
- Ég ætla að berjast gegn fitufordómum og reyna að hjálpa öðrum á sinni leið til heilbrigðari lífstíls.
- Fyrir sumarið ætla ég að vera komin langleiðina að mínum markmiðum eða allavega komin vel af stað.
- Ég vil geta verið í flottum sumarfötum og ekki skammast mín fyrir það að fara í bikiníum í sund.
- Ég ætla að vinna í þolinu mínu og markmiðið í lok febrúar er að geta hlaupið non-stop í 45 mín.
- Ég ætla að vera búin að bæta maxið mitt í hnébeygju og deadlift.
- Ég ætla að vera búin að missa nokkra cm af ummálinu mínu í lok febrúarmánaðar.